Stóri-Hamar
Hestafólkið
07.11.2011 13:11:12 / kýr

Endalokin

Jæja ég er hættur að vinna á Stóra-Hamri og þar sem ég er greinilega ekki mjög virkur að blogga að þá er ég nú bara að hugsa um að hætta því alveg.

Segi því bara takk fyrir mig og hafið það gott.

Kv
Sjonni

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.06.2011 21:24:30 / kýr

Sláttur

Það er búið að slá fyrsta stykkið, 4,2 ha og vonandi verður hægt að binda það á morgun, það þurfti nú endilega að rigna aðeins í dag. Svo á að vera óþurrkur alla næstu viku :cry:  Það eru þónokkrir byrjaðir að slá þannig að þetta er allt að koma. Maður verður bara að vera bjartsýnn.

Jæja læt duga.

Sjonni

» 25 hafa sagt sína skoðun

02.06.2011 19:58:08 / kýr

Sumar

Jæja þá er sumarið loksins komið. Nokkrar kýr búnar að bera undanfarið og sauðburður gekk vel. Það komust 35 lömb úr 20 ám á legg eða 1,75 lamb á á. Frjósemin var sem sagt betri í ár en í fyrra.
Kýrnar voru settar út í fyrsta sinn á þessu ári í dag og virtust þær afar glaðar yfir því.
Vona bara að þetta verði gott sumar til heyskapar.

Já svo er sonurinn kominn með nafn, Jónatan Þór.

Sjonni

» 25 hafa sagt sína skoðun

14.05.2011 14:58:20 / kýr

Nýjar fréttir

Já sauðburður gengur vel, sú síðasta ber sennilega í dag. Frjósemið er betri í ár en í fyrra. Svo hafa nokkrar kýr borið líka og eru 3 komnar á tal. Konan bar á þriðjudaginn, 10.maí, og það var strákur, 17 merkur og 56 cm.
Þannig að nú er nóg líf og fjör í sveitinni.


Sjonni

» 25 hafa sagt sína skoðun

04.05.2011 12:11:28 / kýr

Burðarfréttir

Á mánudaginn bar önnur rolla og átti hún einnig 2 hvíta hrúta. Í gær bar Hjálma sínum öðrum kálfi og það var kvíga og svo í morgun bar Lumma kvígu. Þannig að það er burður á hverjum degi þessa dagana.

Sjonni

» 25 hafa sagt sína skoðun

01.05.2011 19:18:35 / kýr

Burður

Í morgun bar fyrsta rollan og átti hún 2 hvíta hrúta en hún er sjálf flekkótt.
Von er svo á fleiri lömbum næstu daga því það eru margar orðnar burðarlegar. Einnig eru 3 kýr sem gætu borið næstu daga. Svo er frúin alveg komin að burði líka.

Sjonni

» 24 hafa sagt sína skoðun

17.04.2011 09:09:53 / kýr

Burður

Skrauta 319 bar í gær sínum fyrsta kálfi og það var kvíga.

Sjonni

» 24 hafa sagt sína skoðun

09.04.2011 17:58:05 / kýr

Ýmislegt

Dís bar þann 30.mars og átti kvígu sem kom öfug en hún náðist lifandi sem er gott því hún er undan Síríus. Svo fóru tveir á sláturhús um daginn, önnur vegna júgurbólgu en hin var orðin gömul og lúin.
Svo er búið að stinga út úr fjárhúsunum og sauðburður byrjar eftir 10-11 daga.
Vona að vorið sé komið, alla veganna er 15 stiga hiti úti.

Sjonni

» 14 hafa sagt sína skoðun

17.03.2011 19:04:03 / kýr

Burður

Á mánudaginn bar Sól og þurfti ég að draga kvígukálf úr henni en það var dauð kvíga sem kom með afturfæturna á undan. Svo fór ég líka með Krít, tíkina mína, til dýralæknis og lét taka hana úr sambandi þannig að hún mun ekki eiga fleiri hvolpa, því miður.


Sjonni

» 26 hafa sagt sína skoðun

12.03.2011 09:01:58 / kýr

Jæja

Á fimmtudaginn var snoðið tekið af kindunum. Svo er kominn leiðinlega mikill snjór. Á morgun á ein kýr tal og gæti vel borið þá.

Annars er ekkert að frétta.

Sjonni

» 20 hafa sagt sína skoðun

27.02.2011 12:26:39 / kýr

Fréttir

Jæja það báru 2 kýr nú um daginn og átti önnur kvígu en hin naut.

Annars ekkert að frétta og maður hættur að reyna að skilja þetta veður.

Sjonni

» 25 hafa sagt sína skoðun

08.02.2011 10:41:44 / kýr

Loforð

Kannski að maður reyni að standa við það loforð um að vera duglegri að skrifa hér.

Það er svo sem tíðindalítið, það bar ein kvíga um daginn og átti kvígu undan heimanauti sem var Lykilssonur. Svo átti ein kýr tal í gær en er óborin og svo á ein tal eftir 5 daga. Svo er ein sem á tal eftir rúman mánuð og önnur eftir tæpa tvo mánuði. En svo byrjar burðartörn um 20.ap og stendur í 2 mánuði. Sauðburður byrjar líka um 20.ap svo það verður nóg að gera á þessum tíma auk allra vorverka og auk þess á frúin tal 8.maí.

Læt þetta duga núna.

Sjonni

» 27 hafa sagt sína skoðun

09.01.2011 13:53:35 / kýr

2011

Já það er komið nýtt ár og það leggst bara vel í mann þó svo að veðrið er búið að vera leiðinlegt undanfarna daga. Ég er búinn að taka hrútana úr ánum, vona bara að þeir hafi nú sinnt öllum. Annars er ekkert að frétta nema að það er of mikið af snjó hérna.


Sjonni

» 20 hafa sagt sína skoðun

31.12.2010 13:27:55 / kýr

Góðar fréttir

Já engar fréttir eru góðar fréttir. Það er ekkert merkilegt að gerast þessa dagana, bara hirðingar og lítilsháttar verk. Reyndar búið að keyra aðeins skít. Reynt að taka því rólega yfir jólin. Næsta kýr á ekki tal fyrr en 7.feb svo það er frekar rólegt í fjósinu. Svo fer að styttast í skemmtuninni hjá hrútunum.

Sjonni

» 20 hafa sagt sína skoðun

12.12.2010 18:41:07 / kýr

Er á lífi

Það mætti halda að maður væri dauður þar sem ég hef ekkert skrifað lengi.

En það er gaman að segja frá því að síðustu 5 kálfar eru kvígur, að vísu kom ein afturábak og var dauð. Það er búið að vera fínt veður þessa dagana svo maður getur ekkert kvartað. Það lítur út fyrir að ég sé búinn að fá hemili handa öllum hvolpunum svo ekki þarf maður að svæfa neinn. Á morgun eru 2 vikur síðan hrútarnir fóru í ærnar svo vonandi eru þeir bara búnir að sinna þeim öllum.

Læt þetta duga.

Sjonni

» 23 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Heimsóknir
Í dag:  14  Alls: 27786
Klukkan